Velkomin á íslenska heimasíðu esp@cenet!

Hér er hægt að nálgast milljónir einkaleyfaskjala, frá öllum helstu iðnríkjum heims. Upplýsingar í gagnabankanum um hvert einkaleyfisskjal eru mismiklar eftir uppruna skjals.

Ef þú ert að nota gagnagrunnin í fyrsta skipti, geturðu kynnt þér leiðbeiningar um notkun hans hér: Kennsla á esp@cenet gagnagrunnin (á ensku) Hjá Einkaleyfastofunni má einnig nálgast bækling með leiðbeiningum um notkun gagnagrunnsins á íslensku.

Í gagnagrunninum er að finna grunnupplýsingar (bókfræðileg gögn) allra aðgengilegra íslenska einkaleyfisumsókna og útgefinna einkaleyfa. Séu samsvarandi erlend gögn að finna í gagnabankanum, er sýnd tengin við þau. Íslensk einkaleyfi og umsóknir eru aðgreind frá öðrum gögnum með landakóðanum “IS” sem skeytt er framan við umsóknarnúmer og einkaleyfisnúmer (kallað birtingarnúmer).

Íslensk umsóknargögn, þ.e. sjálf skjölin, eru enn ekki aðgengileg í gagnabankanum en hægt er að skoða íslensk einkaleyfi sem útgefin eru frá október 2008. Gagnabankinn er í stöðugri þróun og unnið er að því að bæta við eldri íslenskum skjölum.

Einkaleyfastofan veitir allar nánari upplýsingar um íslensk einkaleyfi og umsóknir og framkvæmir leit í íslenskri einkaleyfaskrá gegn gjaldi.